Svo virðist sem betur hafi tekist til við skipulagningu skipakoma sumarsins heldur en í fyrra. A.m.k. sýnist mér ekki koma upp í ár að tvö eða jafnvel þrjú stór skip komi sama daginn, þótt í einhverjum tilfellum komi tvö minni skip sama dag.
Skipið sem var á Akureyri í gær og sést á þessari mynd heitir Albatros og er 28.518 brúttótonn.
Aidavita, 42.289 brúttótonn var á Akureyri á laugardaginn en ég sá það þar sem við flugum yfir Sundahöfn í Reykjavík í gærmorgun.
1 comment:
Greinilega komið sumar á Íslandi þó enn sé snjór í fjöllum.
Bestu kveðjur frá Cambridge þar sem hvorki eru fjöll né snjór...
Post a Comment