Núna í kvöld er u.þ.b. tveggja stiga hiti og rigning. Seinni partinn á morgun (gamlárskvöld) á að frysta og gæti jafnvel gert slyddu- eða snjóél. Helsta vandamálið verður líklega að finna "skotpall" fyrir flugeldana, varla stingur maður þeim í þá litlu skafla sem þó eru eftir hér sunnan við lóðina.
30.12.06
Næst-síðasta sólarupprás ársins
Núna í kvöld er u.þ.b. tveggja stiga hiti og rigning. Seinni partinn á morgun (gamlárskvöld) á að frysta og gæti jafnvel gert slyddu- eða snjóél. Helsta vandamálið verður líklega að finna "skotpall" fyrir flugeldana, varla stingur maður þeim í þá litlu skafla sem þó eru eftir hér sunnan við lóðina.
26.12.06
Glitský á jóladag
Þrátt fyrir að vera nánast í kallfæri við Múlaveg tókum við ekki eftir neinu (öðru en þessum dynkjum) fyrr en eldurinn hafði logað í hátt í klukkutíma.
25.12.06
Eldur í Malarvinnslunni
Aðfangadagur jóla 2006
Síðustu ár hefur yfirleitt gleymst að setja laufabrauðið á borðið og á því varð engin breyting í ár. Að auki voru eftirréttirnir í frystikistunni í "7" og þar sem allir urðu saddir af aðalréttinum var ákveðið að geyma þá þar til betri tíma.
Rétt fyrir kl. 23:30 fóru síðan sumir til kirkju og sungu þar jólasálma.
23.12.06
Þorláksmessa á vetri
22.12.06
Vetrarsólstöður 2006
Það verður ekki sagt að það sé jólalegt hér í sveitinni eftir hlákuna síðustu daga.
Fyrir þá sem hafa áhuga á slíku þá er grein um stærð hænufetsins á vef Almanaks Háskóla Íslands.
17.12.06
Áttundi afmælisdagurinn
Áttundi afmælisdagur Ingu var reyndar í gær en þá fórum við til Akureyrar. Afmælisboðið var þess vegna haldið í dag.Nokkur afföll voru af gestalista og þess má geta að hitinn frá blysinu setti reykskynjarann af stað...
Að venju var bakað en að þessu sinni var kakan ekki eins flókin og stundum áður. Hins vegar var þeim mun meira lagt í "umhverfisskreytingar" í stofunni þótt það sjáist ekki á þessum myndum.
Frost og fallegt veður
"Köld kveðja"...
Það var fremur kalt þegar þessar myndir voru teknar á heimleið frá Akureyri síðdegis.Krakkarnir fóru á jólaball í boði Glitnis, þar sem m.a. Solla stirða kom í heimsókn. Ingu Freyju þótti ekki leiðinlegt að fá tekna af sér mynd með henni og það á sjálfan 8. afmælisdaginn.
Á meðan krakkarnir voru á jólaballinu fórum við og tæmdum hillurnar í Bónus en síðasti viðkomustaður áður en heim var haldið var Jólahúsið á Hrafnagili.
Það var eiginlega ekki annað hægt en að smella af þessum myndum, þótt kalt væri en eins og sjá má liggur frostþoka yfir Pollinum. Það var sem sagt ekki þannig að við fengjum kaldar kveðjur, heldur varð mér ansi kalt við að kveðja Pollinn...
Fimleikasýning í Skjólbrekku
11.12.06
Jólaljósin
Þá eru loksins komin jólaljósin "allan hringinn"! Það verður nú varla annað sagt en að þetta komi vel út.Max hefur unnið við þetta síðustu daga (þegar hefur viðrað) og gerði þetta miklu betur en ég hefði nokkru sinni getað.
Til gamans má geta að perurnar eru alls 440 talsins og seríurnar 7 eru samtals nálægt 100 metrar að lengd.
Norðurljós
Það er langt síðan ég hef tekið myndir af norðurljósum þannig að ég dreif mig út í kvöld þegar þau létu á sér kræla.
Þessar myndir voru báðar lýstar í 15 sekúndur. Ég var við "Kröfluskemmuna" á Múlavegi og myndavélin vísar ca. til NA.Ég klippti reyndar skólann af úr neðra vinstra horni myndanna þar sem ljósin þar urðu alltof björt.
10.12.06
Aðventustund 2006
Hin árlega aðventustund var haldin í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Á þessari mynd sjást krakkarnir í kirkjuskólanum flytja helgileik.Kórar Reykjahlíðar- og Skútustaðasókna sungu saman nokkur jólalög, auk þess að leiða almennan söng.
Kórarnir fagna báðir 60 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni voru tvö laganna "mývetnsk". Annað þeirra, "Jól" er eftir Jón Árna Sigfússon, fyrrverandi organista Reykjahlíðarkirkju, við ljóð Stefáns frá Hvítadal. Lokalagið, "Jólagleði" var eftir Garðar Karlsson við ljóð Friðriks Steingrímssonar.Friðrik gerði sér reyndar lítið fyrir og orti annað erindi um daginn en upphaflega var aðeins eitt erindi, auk viðlags.
Vetrartónleikar 2006
Það voru heldur færri en venjulega sem komu fram á vetrartónleikunum að þessu sinni. Tónleikarnir tókust samt ágætlega og þeir tóku aðeins rúma klukkustund (en hafa undanfarin ár verið nær tveimur). Því miður var þessi myndbandstökuvél á fremur óheppilegum stað, a.m.k. frá mínum "bæjardyrum" séð.Þau systkin stóðu sig vel, Helgi á sínum fyrstu tónleikum. Helgi og Inga léku reyndar sitt lagið hvort á píanó í Skjólbrekku í "kaffisamsæti jólasveinanna" fyrsta sunnudag í aðventu. Auk þess að spila á harmonikku með hljómsveit lék Pálmi á píanó og trommur á vetrartónleikunum.
Tunglið, tunglið...
Skaflar í skammdeginu
Í nótt gerði austanhvell og skaflarnir í götunni voru eitthvað á annan metra í morgun. Ég þurfti að moka jeppann uppúr skaflinum lengst til vinstri á þessari mynd. Ég náði að troða slóð yfir skaflinn framan við bílinn sem sést lengst til hægri og komst síðan framhjá næsta skafli. Ef vel er að gáð sjást "broddar" af limgerðinu standa uppúr skaflinum í garðinum.
Nú ræður skammdegið ríkjum og sólin kemur ekki upp fyrr en um hádegi. Hún sést líklega samt ekki héðan fyrr en hún er komin vestur fyrir Bláfjall (sem er með stóra og mikla "húfu" í dag). Þessi mynd var tekin kl. 11:22 í morgun.
5.12.06
Kveikt á jólatrénu
Á sunnudag var kveikt á jólatrénu við Reykjahlíðarskóla. Að þessu sinni var fram haldið hefð sem stundum hefur verið í heiðri höfð, þ.e. að yngsti nemandi skólans kveiki á ljósunum.Af þremur nemendum í 1. bekk er Helgi yngstur (þrátt fyrir að vera fæddur í maí) og þess vegna kom það í hans hlut að kveikja ljósin. Sér til fulltingis hafði hann með sér Ingu (sem einnig er yngst í sínum bekk) þar sem ekki var haldið í hefðina þegar hún var í 1. bekk.
Valmar lék á harmonikku og gengið var í kringum tréð og sungið með aðstoð tveggja jólasveina sem komu í heimsókn. Á miðri mynd sjást þau systkini "skúra gólf" ef ég man rétt.
Á eftir var boðið uppá heitt súkkulaði og piparkökur í skólanum.
Laufabrauðsgerð
Litli og stóri...
Subscribe to:
Posts (Atom)






