10.12.06

Aðventustund 2006

Hin árlega aðventustund var haldin í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Á þessari mynd sjást krakkarnir í kirkjuskólanum flytja helgileik.

Kórar Reykjahlíðar- og Skútustaðasókna sungu saman nokkur jólalög, auk þess að leiða almennan söng.
Kórarnir fagna báðir 60 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni voru tvö laganna "mývetnsk". Annað þeirra, "Jól" er eftir Jón Árna Sigfússon, fyrrverandi organista Reykjahlíðarkirkju, við ljóð Stefáns frá Hvítadal. Lokalagið, "Jólagleði" var eftir Garðar Karlsson við ljóð Friðriks Steingrímssonar.

Friðrik gerði sér reyndar lítið fyrir og orti annað erindi um daginn en upphaflega var aðeins eitt erindi, auk viðlags. Posted by Picasa

3 comments:

Bára Mjöll said...

Oh, hvað þetta er jólalegt hjá ykkur. Sé ég rétt að þau systkinin hafi verið í aðalhlutverkum?

Thorarinn said...

Það fer nú aðeins eftir því hvernig það er skilgreint. Þannig var að hlutverk sögumanns var eiginlega stærst... Pálmi og Inga áttu minnir mig sínar tvær línur hvort og Helgi lék mús (með nokkrum tilþrifum).

Ég tók þetta allt upp en er ekki búinn að skoða. Ef vel hefur tekist gæti ég mögulega sent ykkur slóð til að skoða...

Bára Mjöll said...

Oh, það væri æðislegt... :)