Skrapp í höfuðstaðinn á föstudag með hóp frá MA og VMA á framhaldsskólamót í knattspyrnu. Lögðum af stað frá Akureyri um kl. 15:15 og komum til Reykjavíkur um kl. 21:15. MA gisti í MS en VMA í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Við stoppuðum í Staðarskála á leiðinni, þar var grísasnitsel og aspassúpa í kvöldmat. Í Staðarskála er vel tekið á móti rútubílstjórum. Á matmálstímum er manni boðið inn í borðstofu starfsfólks og þar skammtar maður sér eins og maður vill bæði mat og meðlæti, þ.á.m. grænar baunir, rauðkál, sultu og grænmetissalat.
Á laugardagsmorgun fór ég á bensínstöð við Ægisíðu og ætlaði að þvo til að geta sótt hópinn á hreinum bíl. Það var þurrt og gott veður, logn og hiti um 5°C en slöngur og kústa var hvergi að sjá. Ég fór inn og spurði hvort þvottakústar yrðu ekki settir út en strákurinn sem varð fyrir svörum sagðist ekki ráða því en honum þótti það samt líklegt. Skömmu síðar kom vaktstjórinn inn (sama manneskja og sat og reykti úti við ryksugu þegar ég gekk þar framhjá) og ég spurði hvort ég gæti fengið að þvo.
Viðmótið og svarið sem ég fékk kom mér algjörlega í opna skjöldu: "Nei, það eru skýr fyrirmæli um að það fara engar slöngur út í dag. Það tekur hálftíma að koma þessu fyrir og þetta fer ekki út í dag!" Ég spurði hvort ég gæti ekki fengið eina slöngu og kúst og komið því fyrir sjálfur og skilað því að þvotti loknum en það var sko ekki möguleiki. Ég þakkaði kurteislega fyrir og gekk út.
Ég fór því á haugdrullugum bíl (að utan) að sækja hópana í FÁ og MS. Þar sem ég ók upp Ártúnsbrekkuna á leiðinni í Egilshöll sá ég slöngur og kústa úti á þvottaplani á bensínstöð sama fyrirtækis. Það hefur líklega gleymst að senda þeim þessi skýru fyrirmæli sem bárust á Ægisíðu. Það er líka möguleiki - og kannski líklegra, að vaktstjórinn á Ártúnshöfða hafi verið með kveikt á þjónustulundinni og að auki farið rétta leið fram úr rúminu um morguninn... Úr Egilshöll fór ég á Hópferðamiðstöðina þar sem ég þvoði bílinn í sól og blíðu.
Eftir hádegið fór ég í Regatta-búðina og fékk skipti á kuldagalla fyrir Helga, keypti Rope Yoga bæklinga í Hreysti og inniskó í Hagkaup. Fór þaðan á "skrifstofuna", fékk mér að borða, hlustaði á útvarp, drakk kaffi og slakaði á fyrir heimferðina. Þau hringdu síðan ofan úr Egilshöll um kl. 16:45, voru þá búin með alla sína leiki og að verða tilbúin til brottfarar. Ég var kominn uppeftir um kl. 17:00 og við lögðum af stað um kl. 17:20. Þótt sumir væru ansi svangir var ákveðið að fara í Borgarnes og borða þar.
Í Borgarnesi fá rútubílstjórar kaffi og meðlæti á kaffistofu starfsfólks. Ég hef ekki áður stoppað þar á matmálstíma og spurði hvort ég fengi mat. Það var auðsótt mál; tvær lærissneiðar í raspi með sósu og nokkrum kartöflum - og engu öðru. Þetta bragðaðist reyndar ágætlega og skammturinn var alveg mátulegur. Heldur þótti mér þau taka sér tíma í að borða, krakkarnir, það leið rúmlega klukkustund áður en við komumst af stað aftur.
Að þessu sinni var ekið rakleiðis framhjá Staðarskála en á Blönduósi var gert "tæknistopp". (Þeim sem ekki vita hvað það er skal bent á að velta fyrir sér líkamsstarfseminni að lokinni máltið.) Í Blönduskála fékk ég nokkrum sinnum kaffi og meðlæti í sumar og bað því um kaffibolla. Það fékkst með semingi en þegar ég spurði hvort ég fengi kleinu með var svarið þvert "nei". "Það er kominn vetur" var skýringin þegar ég sagði að ég hefði nú fengið meðlæti í sumar...
Það er sem sagt ekki sama hvort maður er með 50 menntaskólakrakka sem kaupa fullt af sælgæti og gosdrykkjum (sem eru nú vörur áreiðanlega ekki með lægstu framlegð) eða 20 - 30 útlendinga sem kaupa bara það allra nauðsynlegasta (eða helst ekki neitt). Hvers konar vitleysa er þetta eiginlega...?
Í Staðarskála fær maður meira að segja kaffi og meðlæti og jafnvel mat á matmálstíma þótt maður sé ekki einu sinni með farþega! Ég veit að þessum stöðum ber engin skylda til að gefa manni eitt eða neitt en það er alveg á hreinu hvar maður stoppar með hópa, ef maður hefur á annað borð nokkuð um það að segja.
Jæja, rétt eftir að við fórum frá Blönduósi kviknaði í mælaborðinu gult viðvörunarljós sem ég hafði ekki séð fyrr. Eftir stutt símtal við Rúnar var ákveðið að keyra bara, enda svo sem ekki um margt annað að ræða. Hefði ljósið verið rautt hefði málið horft öðruvísi við.
Við stoppuðum nokkrar mínútur í Varmahlíð til að hleypa einni stelpu út (og nokkrum krökkum í annað "tæknistopp"). Þegar ég kom inn aftur eftir að sækja farangurinn í lestina var viðvörunarljósið slokknað. Mig grunar reyndar að ljósið tengist eitthvað pylsupottinum eða "eldhúsinu" en hafði ekki tækifæri til að kanna það nánar.
Það var dálítil hálka á Öxnadalsheiði, eðli málsins samkvæmt aðallega á háheiðinni og í Bakkaselsbrekkunni en við skiluðum okkur vandræðalaust til Akureyrar um kl. 23:20. Ég losaði farþega og farangur við heimavistina, það gekk tiltölulega fljótt.
Reyndar skildu þau eftir í bílnum m.a. banana, kodda, nokkra geisladiska og fartölvu (sem ég kom öllu til skila). Þar að auki tómar sælgætisumbúðir í úrvali, töluvert af sælgæti í plastpokum og hátt í 30 flöskur og dósir, ýmist tómar, hálftómar/-fullar eða næstum alveg fullar. Meira að segja nokkur fersk jarðarber í plastbakka. Flöskur og dósir fóru í þar til gerðan gám en ruslið (í þremur stórum haldapokum) í ruslatunnu, allt eftir að ég lauk við að þvo bílinn að utan.
Það er reyndar saga að segja frá þvottinum. Tilfellið var nefninlega að á bílaþvottaplaninu við Leiruveg (sama fyrirtæki og við Ægisíðu og Ártúnshöfða) voru slöngur og kústar, þrátt fyrir að hitastig væri niður undir frostmarki. Reyndar kom í ljós að það var gat á slöngunni á "rútuþvottastæðinu" og það á mjög slæmum stað; það sprautaðist vatn beint framan í mig þegar ég byrjaði að þvo afturendann (á bílnum!).
Nú voru góð ráð dýr því klukkan var orðin 23:40 og búið að loka bensínstöðinni. Ég fór samt að athuga hvort nokkur væri inni og það kom á daginn (eða kannski kvöldið?). Það sem meira var, strákurinn sagði að það væri ekkert mál að skera bút af slöngunni til að losna við gatið. En það var ekki allt því nokkrum mínútum síðar (væntanlega þegar hann var búinn að ganga frá) kom hann aftur til að athuga hvort ekki væri allt í lagi!
Reyndar var kústurinn orðinn dálítið þreyttur og lak aðeins við "endastykkið" en vatnið sprautaðist a.m.k. ekki beint út í loftið. Ég þakkaði stráknum kærlega fyrir þjónustuna enda ætlaðist ég ekki til að hann færi að leita að öðrum kústi í myrkrinu. Mér varð nú líka hugsað til vaktstjórans á Ægisíðu; viðkomandi gæti ýmislegt lært um þjónustulund af kollegum sínum á öðrum stöðvum.
Jæja, þá er þessi ferðasaga orðin dálítið löng og jafnvel farin að minna ögn á sögu Stefáns heitins í Möðrudal af því þegar hann datt af baki um leið og hesturinn fór af stað. Það tók hann hins vegar næstum hálftíma að segja söguna af því! Var af því tilefni sagt að það hefði verið lengsta saga af stystu ferð sem nokkur hefði sagt!
Þessi saga er svo sem ekki margfalt lengri en ferðin sem hún lýsir en af tilefninu, "skreppitúr" til Reykjavíkur sem aðeins stóð rétt rúma 31 klukkustund, varð hún kannski lengri en vænta mátti.
31.10.06
25.10.06
Hverfell
Í tilefni af næstu mynd hér á undan, þá datt mér í hug að skella þessari inn.Þessi mynd er samsett úr tveimur myndum sem teknar voru út um vestari stofugluggann. Forgrunnurinn er frá 18. maí 2006 um kl. 18:20. Bakgrunnurinn er frá 11. maí 2006 kl. 07:50. Myndina notuðum við svo á nafnspjald fyrir Ástu.
Veður heldur batnandi...
Skyggni var heldur betra í dag en í gær og þessi mynd var tekin út um stofugluggann um kl. 16:00 í dag.Ég var feginn að sjá veðurspána í gærkvöldi. Það er útlit fyrir ögn hlýnandi veður og líklegt að vegir verði auðir um helgina. Ég fer með u.þ.b. 50 manna hóp frá Akureyri til Reykjavíkur kl. 15:00 á föstudag og norður aftur á laugardagskvöld. Ég get ekki sagt að ég hafi hlakkað neitt sérstaklega til fararinnar í byrjun vikunnar á meðan útlit var fyrir éljagang og leiðindi...
Reikna með að ná kvöldmatnum í Staðarskála á föstudag. Það er ekki ljóst hvenær lagt verður af stað norður á laugardag, líklega þó of seint til að ná kvöldmat í Staðarskála aftur.
Hef mestar áhyggjur af því að hópurinn vilji bara keyra viðstöðulaust norður en það má víst ekki lengur vegna reglna um hvíldartíma ökumanna...
24.10.06
Vetur er genginn í garð (bókstaflega!)
Þá er löngu og ágætu hausti lokið og veturinn genginn í garð í bókstaflegri merkingu. Síðustu laufin að falla og bráðum verður kominn nægur snjór til að hægt verði að fara á skíði. Aðeins sást í lagnaðarís á Neslandavík í gær.Slægjufundur var haldinn á laugardag og tókst vel. Hlaðborðið svignaði undan tertum og öðru góðgæti, tónlistaratriði voru fjölbreytt og að endingu var marserað út um allt hús.
Skógarþrestir voru í tugatali í trjánum í garðinum um helgina en þeir sjást ekki í dag.
Af ótrúlegri forsjálni fóru ný snjódekk undir Golf-inn í síðustu viku (enda vírarnir farnir að standa út úr þeim gömlu!). Í gær var löng biðröð við dekkjaverkstæðin á Akureyri enda virtist ofankoman koma mörgum á óvart.
22.10.06
Kirkjuskóli
Það var fámennt en góðmennt í kirkjuskólanum í morgun. Hér er hópurinn að æfa sálm með séra Örnólfi.Kirkjuvörðurinn sést ekki á myndinni en eins og sjá má er búið að girða (næstum í orðsins fyllstu merkingu) fyrir aðgang að altarinu. Auk þess að hella á könnuna og sjá fyrir meðlæti sér kirkjuvörður einnig um að ekki sé hlaupið fram ganginn að óþörfu...
13.10.06
Júlíkvöldsólarregnbogar
Þessar myndir voru teknar að kvöldi 2. júlí 2006.
Fyrri myndin var tekin kl. 22:22 og eins og sjá má var regnboginn þá tvöfaldur.
Það var töluverð rigning en nánast logn ef ég man rétt. Til að forðast rigninguna stóð ég í skjóli undir þakskegginu á bílskúrnum.
Seinni myndin var tekin kl. 22:49. Þessi listsýning ljósbrotsins stóð sem sagt drjúga stund þetta kvöld.
Ég hefði gjarnan viljað hafa gleiðlinsu því stundum náði regnboginn heill og óbrotinn til jarðar á hinum endanum, við Jarðbaðshóla séð frá Birkihrauni.
Vinstra megin sést vel þekkt gígskál austan Mývatns.

Fyrri myndin var tekin kl. 22:22 og eins og sjá má var regnboginn þá tvöfaldur.
Það var töluverð rigning en nánast logn ef ég man rétt. Til að forðast rigninguna stóð ég í skjóli undir þakskegginu á bílskúrnum.
Seinni myndin var tekin kl. 22:49. Þessi listsýning ljósbrotsins stóð sem sagt drjúga stund þetta kvöld.Ég hefði gjarnan viljað hafa gleiðlinsu því stundum náði regnboginn heill og óbrotinn til jarðar á hinum endanum, við Jarðbaðshóla séð frá Birkihrauni.
Vinstra megin sést vel þekkt gígskál austan Mývatns.
9.10.06
Myndir úr "strákaferð" til Englands.
Við strákarnir fórum í ferðalag til Bretaveldis í ágúst 2006. Hér fyrir neðan er tengill á myndasyrpu úr fyrri hluta ferðarinnar.
Boeing 747 yfir Legolandi
Þessi var áreiðanlega á leiðinni eitthvert langt. Hún klifraði a.m.k. ekki mjög hratt miðað við aðrar, minni vélar sem einnig tóku á loft frá Heathrow þennan dag.Heldi ég þekki það rétt að þessi vél sé frá British Airways. Myndin var tekin síðla dags og sólin skín eiginlega beint framan á og undir vélina.
5.10.06
Fyrsti póstur
Jæja, þar kom að því... Svo kemur bara í ljós hvort maður nennir nokkuð að skrá hér eitthvað af viti...
Subscribe to:
Posts (Atom)
