29.6.07

Fótbolti

Laugardaginn 16. júní 2007 spilaði 5. flokkur Mývetnings við KA á Akureyri. Með fáeinum lánsmönnum tókst að tefla fram tveimur liðum. Hvort lið hvors félags spilaði tvo leiki og eins og gengur töpuðust sumir en aðrir unnust. Mývetningar skiptu töluvert á milli liða til að jafna leika og er óhætt að segja að allir stóðu sig vel.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var ekki hægt að kvarta undan veðri þennan dag.



Mánudaginn 25. júní 2007 var haldið héraðsmót á Grenivík. Hvert lið lék 8 leiki sem hver var 2x5 mínútur. Mótið hófst kl. 18 og lauk kl. rúmlega 22. Mývetningar stóðu sig með prýði og náðu 2. sæti á eftir C-liði Völsungs og var reyndar eina liðið sem hafði af þeim stig í jafnteflisleik.

Þriðja myndin var tekin við verðlaunaafhendinguna. (Eins og sjá má var þegar þarna var komið sögu búið að kaupa nýja fótboltasokka á drenginn...!)

Það hefur verið mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim framförum sem þessir strákar hafa tekið síðustu tvö árin og kannski sér í lagi í vetur. Nú er farið í hvern leik með það að markmiði að vinna og þeir eiga fyllilega innistæðu fyrir því. Af leikjunum 8 á héraðsmótinu unnu þeir 5 og gerðu 3 jafntefli og voru í raun óheppnir að ná ekki að landa sigri í a.m.k. tveimur þeirra.

Það er hins vegar áhyggjuefni að næstu árgangar eru tiltölulega fámennir og ekki allir sem hafa áhuga á fótbolta. Stelpurnar hafa reyndar komið sterkar inn en það er fyrirsjáanlega á brattann að sækja.

19.6.07

Skemmtiferðaskip í kvöldsólinni

Skemmtiferðaskip koma í stríðum straumi til Akureyrar í sumar.

Svo virðist sem betur hafi tekist til við skipulagningu skipakoma sumarsins heldur en í fyrra. A.m.k. sýnist mér ekki koma upp í ár að tvö eða jafnvel þrjú stór skip komi sama daginn, þótt í einhverjum tilfellum komi tvö minni skip sama dag.

Skipið sem var á Akureyri í gær og sést á þessari mynd heitir Albatros og er 28.518 brúttótonn.

Aidavita, 42.289 brúttótonn var á Akureyri á laugardaginn en ég sá það þar sem við flugum yfir Sundahöfn í Reykjavík í gærmorgun.

Loftmyndir

Flaug heim frá Reykjavík í gærkvöldi og tók þessar myndir á leiðinni. Þessi fyrsta sýnir hvernig símamyndavélin "sér" skrúfublöðin.

Önnur myndin er tekin austantil í Skagafirði og sér norður Tröllaskaga.

Síðasta myndin er tekin norður Eyjafjörð, þar sem við þurftum að taka stórt "S" á meðan við biðum eftir að Hercules-flutningavél lenti á flugvellinum.

7.6.07

Sumarbúðir

Inga og Helgi hófu vikudvöl að Vestmannsvatni í gær. Þau eru í "tígrahópi" en Pálmi verður í "jaxlahópi" frá 18. - 25. júní. Inga og Pálmi fóru í fyrsta skipti í fyrra en Helgi hefur ekki farið áður.
Pálmi fór samt með niðureftir til að passa að allt væri nú í lagi (og opna og loka hliðunum)...

Stutterma...

Ég fór sem sagt seinni partinn í gær að taka myndir við Jarðböðin. Hélt jafnvel að ég hefði misst af bestu skilyrðum, þar sem skýin voru farin að láta til sín taka á vesturhimninum. Þetta slapp samt ótrúlega vel og meðfylgjandi mynd verður notuð til að prenta á stutterma boli sem seldir verða í Jarðböðunum. Það skýrir líka sniðið á henni... (Ef þið hafið séð "norðurljósastuttermabolina" þá verða þessir svipaðir þeim.)

Sumarblíða...

Ég stóðst ekki mátið að senda þessa mynd til vinnufélaganna í Reykjavík í gær..., mér skilst að þar hafi verið rok og rigning en hér var andvari og ca. 18°C.

Eftir vinnu fórum við Helgi í Jarðböðin og hann var ekki lengi að skella sér útí. Ég fór hins vegar að taka fáeinar (urðu að endingu næstum 90) myndir sem til stendur að nota til auglýsinga o.þ.h. Meira á eftir...

5.6.07

Vorkoma 2007

Eftir nokkuð kröftugt þjófstart vorkomunnar um og eftir mánaðamót apríl og maí var nánast haustveður mikinn hluta maí. Það varð nokkrum sinnum alhvítt hér í sveit í maí þótt í apríl hafi varla sést snjókorn. Efsta myndin var tekin að morgni 19. maí 2007 og sýnir tiltölulega lítinn snjó í Hverfelli.

Næsta mynd var tekin að kvöldi 22. maí 2007 og sýnir vel allan þann snjó sem bættist í Bláfjall í maí. Þarna sést líka að ekki er farið að örla á grænum lit á skóginum.

Síðasta myndin var tekin í gærkvöldi, 4. júní 2007 og þar má greinilega sjá græna litinn sem loksins er kominn á skóginn, sem og snjóalög í Bláfjalli. Þess má geta að snjórinn er lítið minni en sést á mynd sem tekin var 15. apríl (en verður ekki sett hér inn að sinni).

Köttur útí mýri...?

Nei..., tveir kettir uppí tré...!

Heyrði undarleg óhljóð (hljómaði fyrst eins og mávagarg) inn um gluggann einn góðan veðurdag í maí (einn af fáum!). Þegar ég leit út sá ég þessa tvo ketti í öspinni. Þeir virtust ekkert sérstaklega vinalegir...

Sá sem neðar var yfirgaf samkvæmið fljótlega og ég er ekki frá því að hann hafi verið með glott á vör þar sem hann skokkaði í burtu. Hinn tók sér drjúga stund að skríða niður og dást að útsýninu í leiðinni.

Reiðhjóladagur í Reynihlíð

Reiðhjóladagur var haldinn á planinu við Hótel Reynihlíð mánudaginn 14. maí 2007. Það voru Svd. Hringur og Kiwanisklúbburinn Herðubreið sem stóðu fyrir honum með aðstoð lögreglunnar á Húsavík.

Auk þess að allir (þrír!) í fyrsta bekk fengu afhentan reiðhjólahjálm að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Herðubreið sýndi "Alli lögga" (eins og hann kynnti sig) gagnsemi slíkra hjálma. Til þess notaði hann egg og sérstakan "hjálm" sem hann setti eggið í og lét síðan detta á gangstéttina.

Eggið brotnaði ekki þegar það var í "hjálminum" en eins og nærri má geta brotnaði það þegar það var látið detta án hans. Auk þessa skoðaði "Alli lögga" reiðhjólin á staðnum.
Það var ögn napurt þennan dag en krakkarnir létu það ekki á sig fá. Þau hjóluðu í gegnum þrautabraut sem lögð hafði verið á planið og að endingu hraðamældi "Alli lögga" þá sem vildu með radarnum í löggubílnum.

Helgi James 7 ára

Helgi James varð 7 ára þann 10. maí sl. M.a. vegna þess að vortónleikar tónlistarskólans voru haldnir þá um kvöldið var ákveðið að fresta veislunni.

Það var samt bökuð kaka daginn eftir. Það er svo skemmst frá því að segja að veðrið var frekar leiðinlegt það sem eftir var mánaðarins og ekki tækifæri til frekari veisluhalda.

Veislan var að lokum haldin í góðri veðurspá laugardaginn 2. júní. Eitthvað frétti veðrið lítið af spánni og það var SA-belgingur en samt þokkalega hlýtt.

Grilluðu pylsurnar voru þess vegna snæddar innandyra og að því loknu fóru allir í sund. Ekki er annað vitað en að allir hafi skemmt sér konunglega.

Það er rétt að taka fram að stofan var þennan dag hætt að þjóna hlutverki Rope-yoga-salar en ekki enn komin í búning morgunverðarsalar.