21.1.07

Þorrablót 2007

Þorrablótið var haldið á laugardagskvöld og var mikið fjölmenni í Skjólbrekku. Ekki varð betur séð en að gestir skemmtu sér vel.

Mari-Liis og Max komu með og stóðu sig vel í að smakka á góðgætinu.

Meðfylgjandi myndir voru teknar með símamyndavél og eru þess vegna ekki alveg "eins og venjulega"...
Skemmtinefndin fór á kostum og gerði grín að sveitungum sínum og ekki síst sjálfum sér.

Hér sjást þeir Arngrímur, Jónas Pétur og Sigurður á Gautlöndum (á bakvið kaffikönnuna) í hlutverkum "kaffikvenna" í Strax. Þarna voru rædd hin ýmsu mál er varða sveitina, m.a. fólksfjölgunarskort. Var jafnvel talið að verkþekking væri á undanhaldi.

Takið sérstaklega eftir fléttunum hans Jónasar Péturs!
Posted by Picasa

4.1.07

Við sólar-upp-rás....

Fyrirsögnina kannast þeir við sem sungið hafa í kirkjukór við áramótamessur... Ég er eiginlega með þetta á heilanum núna.

Fyrsta myndin var tekin kl. 10:58 og kostaði truflun á Rope Yoga-tíma. Ég var á skrifstofunni en bara varð að laumast út þegar ég sá þetta út um gluggann.

Næsta mynd var tekin kl. 11:00, nokkurn veginn í öfuga átt við þá fyrstu. Það er SV-hornið á Háuhlíð sem sést neðst í hægra horninu.

Síðustu myndina tók ég kl. 12:31 en þar sést örlítil sneið sólarinnar rétt gægjast á milli Hverfells og Bláfjalls.
Posted by Picasa

Á nýársdag

Það eru engar ýkjur að segja að Inga hafi áhuga á ballett. Hún tekur sig líka heldur betur vel út í þessum kjól sem hún fékk sendan frá "frænku" í Englandi.
Þessar myndir voru teknar seinni partinn á nýársdag, rétt áður en við fórum í H15 (í einiberjakryddað læri).
Posted by Picasa

1.1.07

Gleðilegt ár!

Nú árið er liðið...
og Björgunarsveitin Stefán hélt sína árlegu flugeldasýningu.
Ég er ekki frá því að sýningin hafi verið með betra móti í ár.

Fjölmenni sótti brennuna sem að þessu sinni var höfð rétt vestan við Jarðböðin.

Staðurinn er frábær; næg bílastæði, gott aðgengi og útsýni yfir brennuna og flugeldasýninguna.

Óska öllum þeim sem þetta lesa gleðilegs árs, með þökk fyrir það liðna. Megi nýja árið verða öllum happadrjúgt.
Posted by Picasa