1.3.07

Skýjaskoðun

Var að tala í símann í dag og varð litið út um gluggann. Rauk með það sama út með myndavélina á lofti og tók þessa fyrri mynd nánast beint upp í loftið (og aðeins til suðurs).

Ég veit ekki fyrir víst hvað svona ský heita en þau voru mjög sérstök og falleg. Ég hefði bara þurft að hafa töluvert gleiðari linsu til að ná þessu sómasamlega.
Þar sem ég stóð á stéttinni, tók myndir og horfði út í loftið komu snjótittlingarnir og settust í aspirnar. Við höfum verið dugleg að gefa þeim síðustu daga, reyndar svo dugleg að í dag var allt fræ búið!

Þeir virtust ekki amast við mér og sátu drjúga stund sem fastast, nema þessi eini þarna í vinstra horninu, efst...
Posted by Picasa