Veislutjald var reist sunnan undir húsinu þar sem hljómsveit spilaði fyrir dansi. Þá voru drykkir og fingrafæði í úrvali og flugeldasýning meðal þess sem varð til þess að áreiðanlega vel á annað hundrað gestir skemmtu sér konunglega.
7.5.07
Fertugsafmæli friðargæsluliðans
Veislutjald var reist sunnan undir húsinu þar sem hljómsveit spilaði fyrir dansi. Þá voru drykkir og fingrafæði í úrvali og flugeldasýning meðal þess sem varð til þess að áreiðanlega vel á annað hundrað gestir skemmtu sér konunglega.
Við Másvatn 29. apríl 2007
Því miður finn ég ekki hitastig veðurstöðvarinnar á Mývatnsheiði þennan dag en um það bil sem þessi mynd var tekin mældist hitinn 12,6°C við skíðalyftuna við Kröflu.
Hins vegar var ekki hægt að aka framhjá þessum tjöldum við Másvatn án þess að taka mynd. Því miður var aðeins símamyndavélin með í för.
Fimleikasýning 1. maí 2007
Þann fyrsta maí var haldin fimleikasýning í Skjólbrekku, lokapunkturinn á fimleikanámskeiði vetrarins. Yngri hópurinn sýndi fyrst nokkrar æfingar á dýnu og að því loknu hópatriði með boltum.
Áhorfendur skemmtu sér vel og var augljóst að krökkunum hefur farið heilmikið fram í vetur.

Á efstu myndinni má sjá Helga James (næst) í miðjum kollhnís, á næstu mynd er Inga Freyja í handahlaupi og að lokum eru tvær myndir frá hópatriðinu.
Grímuball í Bárðardal, seinni hluti
Að borðhaldi loknu var skipað í þrjú lið sem kepptu í fáeinum "samkvæmisleikjum", m.a. jurtagreiningu, drykkjagreiningu og "bílaleik".Um "sveitakeppni" var að ræða, þannig var hvert lið skipað fulltrúum úr hverri sveit en fáum sögum fór af úrslitum.

Eftir "samkvæmiskeppnina" var dansað og áður en haldið var heim á leið var tekið til í salnum og hann þrifinn.

U.þ.b. helmingur gesta tók sér far með rútu frá Fjallasýn RÓ sem undirritaður ók.
Grímuball í Bárðardal, fyrri hluti.
Héraðsmót í "battabolta" 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)




