30.12.06

Næst-síðasta sólarupprás ársins

Þessi sólarupprás er frekar drungaleg miðað við árstíma enda jörð orðin alauð og m.a.s. lítill snjór eftir í Bláfjalli. Þessi mynd var tekin kl. 11:32 en þótt sólin skini ekki á húsin í þorpinu fyrr en á öðrum tímanum þá náði hún í efsta hluta Háuhlíðar áður en hún hvarf á bakvið Bláfjall.

Núna í kvöld er u.þ.b. tveggja stiga hiti og rigning. Seinni partinn á morgun (gamlárskvöld) á að frysta og gæti jafnvel gert slyddu- eða snjóél. Helsta vandamálið verður líklega að finna "skotpall" fyrir flugeldana, varla stingur maður þeim í þá litlu skafla sem þó eru eftir hér sunnan við lóðina.
Posted by Picasa

26.12.06

Glitský á jóladag

Þetta eru öllu skemmtilegri myndir en þær sem ég setti inn í gærkvöldi.

Það voru sem sagt falleg glitský á lofti hér í gær, jóladag. Þess skal getið að til að draga fram litina eru myndirnar ögn undirlýstar.

Fyrsta myndin var tekin kl. 13:06, næsta kl. 15:04, sú þriðja kl. 15:56 og sú síðasta kl. 16:02.

Á meðan ég var að koma þessum myndum í tölvuna heyrði ég tvo dynki og hélt að krakkarnir hefðu misst eitthvað þungt á gólfið uppi. Líklega voru það gaskútar eða eitthvað álíka að springa í eldsvoðanum.

Þrátt fyrir að vera nánast í kallfæri við Múlaveg tókum við ekki eftir neinu (öðru en þessum dynkjum) fyrr en eldurinn hafði logað í hátt í klukkutíma.
Posted by Picasa

25.12.06

Eldur í Malarvinnslunni

Eldur kom upp í Malarvinnslunni - áður Sniðli, nú síðdegis. Ysti hluti hússins virðist ónýtur, a.m.k. er þakið fallið en eldveggur virðist hafa komið í veg fyrir að eldurinn færi í syðri hluta hússins. Eitthvað virtist slökkvilið sveitarinnar eiga í vandræðum með vatn og náðust ekki tök á eldinum fyrr en slökkvilið kom frá Húsavík.
Því er við að bæta að tveir bílar brunnu inni, annars vegar flutningabíllinn sem verið hefur í ferðum til Akureyrar og hins vegar glænýr MAN sem ætlaður var til snjóruðnings en var ekki kominn í notkun.
Posted by Picasa

Aðfangadagur jóla 2006

Á borðum voru hænsnfuglar sem smökkuðust vel að vanda. Að lokinni máltíð (og uppvaski) voru teknir upp pakkarnir, sem aðeins sést í undir jólatrénu. Sérstök athygli skal vakin á kertastjökunum yfir borðinu en birtan frá kertunum 20 var sérlega hátíðleg.

Síðustu ár hefur yfirleitt gleymst að setja laufabrauðið á borðið og á því varð engin breyting í ár. Að auki voru eftirréttirnir í frystikistunni í "7" og þar sem allir urðu saddir af aðalréttinum var ákveðið að geyma þá þar til betri tíma.

Rétt fyrir kl. 23:30 fóru síðan sumir til kirkju og sungu þar jólasálma.
Posted by Picasa

23.12.06

Þorláksmessa á vetri

Í dag var sólin fáeinum sekúndum lengur á lofti en í gær. Hins vegar var ekki laust við að það væri dálítið moldviðri, enda frekar hvasst og nánast alauð jörð hér á hálendinu.
Posted by Picasa

22.12.06

Vetrarsólstöður 2006

Í dag voru vetrarsólstöður. Vegna skýjafars sást ekki til sólar hér í Mývatnssveit, þótt ekki munaði miklu. Þessi mynd var tekin kl. 12:32.

Það verður ekki sagt að það sé jólalegt hér í sveitinni eftir hlákuna síðustu daga.
Þessi mynd var tekin nálægt hádegi (á eftir að athuga betur) eða kl. 13:16.

Fyrir þá sem hafa áhuga á slíku þá er grein um stærð hænufetsins á vef Almanaks Háskóla Íslands.
Posted by Picasa

17.12.06

Áttundi afmælisdagurinn

Áttundi afmælisdagur Ingu var reyndar í gær en þá fórum við til Akureyrar. Afmælisboðið var þess vegna haldið í dag.

Nokkur afföll voru af gestalista og þess má geta að hitinn frá blysinu setti reykskynjarann af stað...
Að venju var bakað en að þessu sinni var kakan ekki eins flókin og stundum áður. Hins vegar var þeim mun meira lagt í "umhverfisskreytingar" í stofunni þótt það sjáist ekki á þessum myndum. Posted by Picasa

Frost og fallegt veður

Það var frost og fallegt veður í Mývatnssveit í dag. Það var samt töluvert skýjað og þess vegna ekki góð birta til myndatöku fyrr en núna seinni partinn. Posted by Picasa

Mývatnsheiðar"magic"

Þessi var tekin á Mývatnsheiði (við veðurstöðina) síðdegis, ca. hálfum öðrum tíma eftir sólsetur. Posted by Picasa

"Köld kveðja"...

Það var fremur kalt þegar þessar myndir voru teknar á heimleið frá Akureyri síðdegis.

Krakkarnir fóru á jólaball í boði Glitnis, þar sem m.a. Solla stirða kom í heimsókn. Ingu Freyju þótti ekki leiðinlegt að fá tekna af sér mynd með henni og það á sjálfan 8. afmælisdaginn.

Á meðan krakkarnir voru á jólaballinu fórum við og tæmdum hillurnar í Bónus en síðasti viðkomustaður áður en heim var haldið var Jólahúsið á Hrafnagili.

Það var eiginlega ekki annað hægt en að smella af þessum myndum, þótt kalt væri en eins og sjá má liggur frostþoka yfir Pollinum. Það var sem sagt ekki þannig að við fengjum kaldar kveðjur, heldur varð mér ansi kalt við að kveðja Pollinn... Posted by Picasa

Fimleikasýning í Skjólbrekku

Krakkarnir tóku þátt í lokasýningu fimleikanámskeiðsins í Skjólbrekku sl. þriðjudag.
Þar voru sýndar æfingar sem þau hafa æft síðustu vikurnar við "Jólahjólalag" Sniglabandsins.

Það er óhætt að segja að allir hafi skemmt sér vel! Posted by Picasa

11.12.06

Jólaljósin

Þá eru loksins komin jólaljósin "allan hringinn"! Það verður nú varla annað sagt en að þetta komi vel út.

Max hefur unnið við þetta síðustu daga (þegar hefur viðrað) og gerði þetta miklu betur en ég hefði nokkru sinni getað.

Til gamans má geta að perurnar eru alls 440 talsins og seríurnar 7 eru samtals nálægt 100 metrar að lengd. Posted by Picasa

Norðurljós

Það er langt síðan ég hef tekið myndir af norðurljósum þannig að ég dreif mig út í kvöld þegar þau létu á sér kræla.

Þessar myndir voru báðar lýstar í 15 sekúndur. Ég var við "Kröfluskemmuna" á Múlavegi og myndavélin vísar ca. til NA.

Ég klippti reyndar skólann af úr neðra vinstra horni myndanna þar sem ljósin þar urðu alltof björt. Posted by Picasa

10.12.06

Aðventustund 2006

Hin árlega aðventustund var haldin í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Á þessari mynd sjást krakkarnir í kirkjuskólanum flytja helgileik.

Kórar Reykjahlíðar- og Skútustaðasókna sungu saman nokkur jólalög, auk þess að leiða almennan söng.
Kórarnir fagna báðir 60 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni voru tvö laganna "mývetnsk". Annað þeirra, "Jól" er eftir Jón Árna Sigfússon, fyrrverandi organista Reykjahlíðarkirkju, við ljóð Stefáns frá Hvítadal. Lokalagið, "Jólagleði" var eftir Garðar Karlsson við ljóð Friðriks Steingrímssonar.

Friðrik gerði sér reyndar lítið fyrir og orti annað erindi um daginn en upphaflega var aðeins eitt erindi, auk viðlags. Posted by Picasa

Vetrartónleikar 2006

Það voru heldur færri en venjulega sem komu fram á vetrartónleikunum að þessu sinni. Tónleikarnir tókust samt ágætlega og þeir tóku aðeins rúma klukkustund (en hafa undanfarin ár verið nær tveimur). Því miður var þessi myndbandstökuvél á fremur óheppilegum stað, a.m.k. frá mínum "bæjardyrum" séð.

Þau systkin stóðu sig vel, Helgi á sínum fyrstu tónleikum. Helgi og Inga léku reyndar sitt lagið hvort á píanó í Skjólbrekku í "kaffisamsæti jólasveinanna" fyrsta sunnudag í aðventu. Auk þess að spila á harmonikku með hljómsveit lék Pálmi á píanó og trommur á vetrartónleikunum. Posted by Picasa

Tunglið, tunglið...

Ég hefði gjarnan viljað hafa tækifæri til að fara niður að sjó til að taka mynd af tunglinu þann 6. desember. Þá hefði nú heldur ekki verið verra að hafa öflugri aðdráttarlinsu. Jæja, kannski "næst"... Í þetta sinn varð að duga að "skjóta" út um gluggann á Hvannavöllum. Posted by Picasa

Skaflar í skammdeginu

Í nótt gerði austanhvell og skaflarnir í götunni voru eitthvað á annan metra í morgun. Ég þurfti að moka jeppann uppúr skaflinum lengst til vinstri á þessari mynd. Ég náði að troða slóð yfir skaflinn framan við bílinn sem sést lengst til hægri og komst síðan framhjá næsta skafli. Ef vel er að gáð sjást "broddar" af limgerðinu standa uppúr skaflinum í garðinum.
Nú ræður skammdegið ríkjum og sólin kemur ekki upp fyrr en um hádegi. Hún sést líklega samt ekki héðan fyrr en hún er komin vestur fyrir Bláfjall (sem er með stóra og mikla "húfu" í dag). Þessi mynd var tekin kl. 11:22 í morgun. Posted by Picasa

5.12.06

Kveikt á jólatrénu

Á sunnudag var kveikt á jólatrénu við Reykjahlíðarskóla. Að þessu sinni var fram haldið hefð sem stundum hefur verið í heiðri höfð, þ.e. að yngsti nemandi skólans kveiki á ljósunum.

Af þremur nemendum í 1. bekk er Helgi yngstur (þrátt fyrir að vera fæddur í maí) og þess vegna kom það í hans hlut að kveikja ljósin. Sér til fulltingis hafði hann með sér Ingu (sem einnig er yngst í sínum bekk) þar sem ekki var haldið í hefðina þegar hún var í 1. bekk.

Valmar lék á harmonikku og gengið var í kringum tréð og sungið með aðstoð tveggja jólasveina sem komu í heimsókn. Á miðri mynd sjást þau systkini "skúra gólf" ef ég man rétt.

Á eftir var boðið uppá heitt súkkulaði og piparkökur í skólanum. Posted by Picasa

Laufabrauðsgerð

Á sunnudag var gert laufabrauð í H15. Helgi var búinn með einar 5 kökur þegar við hin komum niðureftir (hann mátti ekki vera að því að bíða og hljóp á undan). Hann var óspar á góð ráð og hvatti aðra til dáða. Mari-Liis stóð sig vel og steikti líka. Posted by Picasa

Litli og stóri...

Það er ekki gott að segja hvað þeim fór á milli "slánanum" í 6. bekk og Helga í 1. bekk. Þór vann riðilinn en Mývetningar stóðu sig engu að síður vel. Í þessum lokaleik fékk "bekkurinn" að spreyta sig og það verður ekki annað sagt en að þeir lögðu sig alla fram. Posted by Picasa