4.12.06

Íslandsmót í Ólafsfirði

Á laugardag tóku ungir Mývetningar þátt í Íslandsmóti í knattspyrnu innanhúss. Keppt var í 5. flokki og fór keppni í "okkar" riðli fram í Ólafsfirði. Drengirnir stóðu sig vel miðað við aðstæður. Í hinum liðunum flestum voru flestir eða allir í seinni árgangi 5. flokks. Í okkar liði voru 2 í þeim árgangi, nokkrir í fyrri árgangi, fáeinir í 6. flokki og einn í 7. flokki.

Á meðfylgjandi mynd sjást þeir bræður (lengst til vinstri og næst) í lokaleiknum. Posted by Picasa

No comments: