
Ég fór sem sagt seinni partinn í gær að taka myndir við Jarðböðin. Hélt jafnvel að ég hefði misst af bestu skilyrðum, þar sem skýin voru farin að láta til sín taka á vesturhimninum. Þetta slapp samt ótrúlega vel og meðfylgjandi mynd verður notuð til að prenta á stutterma boli sem seldir verða í Jarðböðunum. Það skýrir líka sniðið á henni... (Ef þið hafið séð "norðurljósastuttermabolina" þá verða þessir svipaðir þeim.)
8 comments:
Vahaháááá!!! Alveg geggjuð mynd, ég segi nú ekki annað.
En maður fær bara næstum heimþrá við að skoða þessar fallegu myndir úr sveitinni. Takk fyrir að sýna okkur þær Pálmi.
Bestu kveðjur!
Glæsilegar myndir hjá þér frændi og þessi sérstaklega ;)
Bestu kv. Kristbjörg & fjölskylda ;)
Takk fyrir, báðar tvær. Maður slysast til að hitta á þokkaleg skot annað slagið... :-)
Annars frétti ég af því að "andfætlingar" hefðu áhuga á að sjá mýflugnamergðina sem hefur heiðrað okkur Mývetninga með nærveru sinni síðustu daga. Ég sá alveg magnað dæmi um þetta á svæðinu norðan vegar á milli Garðs og Skútustaða í dag en hafði því miður ekki tök á að stoppa til að mynda (var með 50 franska ferðamenn í bílnum...).
Já það væri gaman ef þú gætir skellt inn myndum af nokkrum flugum. Annars var Þorgeir í upplýsingamiðstöðinni svo góður að senda mér nokkrar myndir sem hann hafði tekið. Og þvílík mergð!!
Já, þessi er flott. (En hvernig eru norðurljósastuttermabolirnir?)
Norðurljósabolur
Takk... sniðugt. Ekki áttu þessa líka...?
Nei, ég á ekki norðurljósamyndina.
Reyndar veit ég ekki hvort Jarðbaðabolurinn verður settur í sölu hjá Cintamani en hann verður til sölu í Jarðböðunum, auk þess sem starfsfólk verður í slíkum bolum.
Post a Comment