13.10.06

Júlíkvöldsólarregnbogar

Þessar myndir voru teknar að kvöldi 2. júlí 2006.Tvöfaldur regnbogi
Fyrri myndin var tekin kl. 22:22 og eins og sjá má var regnboginn þá tvöfaldur.
Það var töluverð rigning en nánast logn ef ég man rétt. Til að forðast rigninguna stóð ég í skjóli undir þakskegginu á bílskúrnum.

Einfaldur regnbogiSeinni myndin var tekin kl. 22:49. Þessi listsýning ljósbrotsins stóð sem sagt drjúga stund þetta kvöld.
Ég hefði gjarnan viljað hafa gleiðlinsu því stundum náði regnboginn heill og óbrotinn til jarðar á hinum endanum, við Jarðbaðshóla séð frá Birkihrauni.

Vinstra megin sést vel þekkt gígskál austan Mývatns. Posted by Picasa

No comments: