
Helgi James varð 7 ára þann 10. maí sl. M.a. vegna þess að vortónleikar tónlistarskólans voru haldnir þá um kvöldið var ákveðið að fresta veislunni.
Það var samt bökuð kaka daginn eftir. Það er svo skemmst frá því að segja að veðrið var frekar leiðinlegt það sem eftir var mánaðarins og ekki tækifæri til frekari veisluhalda.

Veislan var að lokum haldin í góðri veðurspá laugardaginn 2. júní. Eitthvað frétti veðrið lítið af spánni og það var SA-belgingur en samt þokkalega hlýtt.

Grilluðu pylsurnar voru þess vegna snæddar innandyra og að því loknu fóru allir í sund. Ekki er annað vitað en að allir hafi skemmt sér konunglega.
Það er rétt að taka fram að stofan var þennan dag hætt að þjóna hlutverki Rope-yoga-salar en ekki enn komin í búning morgunverðarsalar.
3 comments:
Elsku kallinn, orðinn 7 ára! Við sendum nú smá pakka, en náðum ekki að hringja á afmælisdaginn... sendum bara síðbúnar afmæliskveðjur núna ;)
Mikið rosalega hafa krakkarnir stækkað í vetur!
Til hamingju með "litla" strákinn ykkar (c:
Takk, báðar tvær, kem þessu til skila.
Post a Comment