29.6.07

Fótbolti

Laugardaginn 16. júní 2007 spilaði 5. flokkur Mývetnings við KA á Akureyri. Með fáeinum lánsmönnum tókst að tefla fram tveimur liðum. Hvort lið hvors félags spilaði tvo leiki og eins og gengur töpuðust sumir en aðrir unnust. Mývetningar skiptu töluvert á milli liða til að jafna leika og er óhætt að segja að allir stóðu sig vel.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var ekki hægt að kvarta undan veðri þennan dag.



Mánudaginn 25. júní 2007 var haldið héraðsmót á Grenivík. Hvert lið lék 8 leiki sem hver var 2x5 mínútur. Mótið hófst kl. 18 og lauk kl. rúmlega 22. Mývetningar stóðu sig með prýði og náðu 2. sæti á eftir C-liði Völsungs og var reyndar eina liðið sem hafði af þeim stig í jafnteflisleik.

Þriðja myndin var tekin við verðlaunaafhendinguna. (Eins og sjá má var þegar þarna var komið sögu búið að kaupa nýja fótboltasokka á drenginn...!)

Það hefur verið mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim framförum sem þessir strákar hafa tekið síðustu tvö árin og kannski sér í lagi í vetur. Nú er farið í hvern leik með það að markmiði að vinna og þeir eiga fyllilega innistæðu fyrir því. Af leikjunum 8 á héraðsmótinu unnu þeir 5 og gerðu 3 jafntefli og voru í raun óheppnir að ná ekki að landa sigri í a.m.k. tveimur þeirra.

Það er hins vegar áhyggjuefni að næstu árgangar eru tiltölulega fámennir og ekki allir sem hafa áhuga á fótbolta. Stelpurnar hafa reyndar komið sterkar inn en það er fyrirsjáanlega á brattann að sækja.

5 comments:

Bára Mjöll said...

Glæsilegt, til hamingju! Þetta er rétti andinn, það þarf að gefa þeim sjálfstraust og þá er allt hægt. Nema kannski ef árgangarnir eru mjög litlir... það er vandamál sem við þekkjum líka fyrir austan. Bestu kveðjur frá Cambridge.

Anonymous said...

Til hamingju með frúna Pálmi.

Afmæliskveðjur!

Bára Mjöll said...

Já, bestu afmæliskveðjur til Ástu frá okkur líka hér í Cambridge UK.

Thorarinn said...

Takk, ég skila þessu til þeirra í Brussel. Þau flugu til Parísar á þriðjudag og spókuðu sig þar um í gær og dag. Fóru m.a. í Eiffel-turninn í dag og tóku síðan lest til Brussel.

Kveðja,

ÞPJ

ES Er á Neskaupstað, lenti í alveg hrikalegri þoku á Fagradag og í Oddsskarði, þar var skyggni allt niður í 10 metra, líka í göngunum!

Bára Mjöll said...

Heyrðu, er þetta ekki að verða ágætis sumarfrí hjá þér? Mig langar að sjá myndir...

Kveðja frá Seyðis :)