17.12.06

"Köld kveðja"...

Það var fremur kalt þegar þessar myndir voru teknar á heimleið frá Akureyri síðdegis.

Krakkarnir fóru á jólaball í boði Glitnis, þar sem m.a. Solla stirða kom í heimsókn. Ingu Freyju þótti ekki leiðinlegt að fá tekna af sér mynd með henni og það á sjálfan 8. afmælisdaginn.

Á meðan krakkarnir voru á jólaballinu fórum við og tæmdum hillurnar í Bónus en síðasti viðkomustaður áður en heim var haldið var Jólahúsið á Hrafnagili.

Það var eiginlega ekki annað hægt en að smella af þessum myndum, þótt kalt væri en eins og sjá má liggur frostþoka yfir Pollinum. Það var sem sagt ekki þannig að við fengjum kaldar kveðjur, heldur varð mér ansi kalt við að kveðja Pollinn... Posted by Picasa

2 comments:

Bára Mjöll said...

Mmmmm snjór og kuldi - og skíðalyftan meira að segja opin, eða hvað?

Thorarinn said...

Jamm, það hefur verið opið síðustu vikurnar, ýmist með "náttúrulegum" snjó eða "heimatilbúnum". Veit samt ekki hvernig ástandið er núna, eftir þessa miklu hláku með úrkomu og roki.