11.12.06

Jólaljósin

Þá eru loksins komin jólaljósin "allan hringinn"! Það verður nú varla annað sagt en að þetta komi vel út.

Max hefur unnið við þetta síðustu daga (þegar hefur viðrað) og gerði þetta miklu betur en ég hefði nokkru sinni getað.

Til gamans má geta að perurnar eru alls 440 talsins og seríurnar 7 eru samtals nálægt 100 metrar að lengd. Posted by Picasa

4 comments:

Elva said...

Já það er ekki hægt að segja annað en maður fái nasaþefinn af jólastemningunni í Mývatnssveit í gegnum síðuna þína. Jólatónleikar, aðventutónleikar, jólaljós og meira að segja norðurljós!! Ef maður gæti flutt kulda, myrkur og lykt í gegnum tölvur, þá væri þetta fullkomið :)

Bára Mjöll said...

Þvílík veisla fyrir augað, þessar myndir allar Pálmi - kærar þakkir. Gaman að fá að sjá jólin koma í Mývatnssveit. Max er líka snillingur, bið að heilsa honum :)

Bára Mjöll said...

Afmæliskveðja til Ingu Freyju skvísu :)

Thorarinn said...

Elva, ég gerði mitt besta með kulda og myrkur (sjá myndir síðan í dag). Ég er ennþá að velta fyrir mér hvernig ég fer að með lyktina. Það er spurning hvort ég næ skötuilminum...

BM, takk fyrir, skila því og takk fyrir. :-)