26.12.06

Glitský á jóladag

Þetta eru öllu skemmtilegri myndir en þær sem ég setti inn í gærkvöldi.

Það voru sem sagt falleg glitský á lofti hér í gær, jóladag. Þess skal getið að til að draga fram litina eru myndirnar ögn undirlýstar.

Fyrsta myndin var tekin kl. 13:06, næsta kl. 15:04, sú þriðja kl. 15:56 og sú síðasta kl. 16:02.

Á meðan ég var að koma þessum myndum í tölvuna heyrði ég tvo dynki og hélt að krakkarnir hefðu misst eitthvað þungt á gólfið uppi. Líklega voru það gaskútar eða eitthvað álíka að springa í eldsvoðanum.

Þrátt fyrir að vera nánast í kallfæri við Múlaveg tókum við ekki eftir neinu (öðru en þessum dynkjum) fyrr en eldurinn hafði logað í hátt í klukkutíma.
Posted by Picasa

3 comments:

Bára Mjöll said...

Já, þessar eru rosalega fallegar. En bruninn á jóladag hefur verið alveg hrikalegur!

Bára Mjöll said...

Hæ, pakkinn frá ykkur kom í gær. Takk fyrir okkur :)

Thorarinn said...

Verði ykkur að góðu og takk sömuleiðis!