25.12.06

Aðfangadagur jóla 2006

Á borðum voru hænsnfuglar sem smökkuðust vel að vanda. Að lokinni máltíð (og uppvaski) voru teknir upp pakkarnir, sem aðeins sést í undir jólatrénu. Sérstök athygli skal vakin á kertastjökunum yfir borðinu en birtan frá kertunum 20 var sérlega hátíðleg.

Síðustu ár hefur yfirleitt gleymst að setja laufabrauðið á borðið og á því varð engin breyting í ár. Að auki voru eftirréttirnir í frystikistunni í "7" og þar sem allir urðu saddir af aðalréttinum var ákveðið að geyma þá þar til betri tíma.

Rétt fyrir kl. 23:30 fóru síðan sumir til kirkju og sungu þar jólasálma.
Posted by Picasa

3 comments:

Bára Mjöll said...

Flottir kertastjakar, eru þeir nýir? Við vorum hjá Nínu allan daginn í gær og tókum pakkana upp þar. Erum svo að fara með þeim á James Bond í bíó á eftir. Verður ekki Skype í gangi hjá þér á gamlarskvöld? Bestu kveðjur.

Elva said...

Góð fjölskyldumynd! Og kertastakarnir flottir.

Thorarinn said...

Takk, kertastjakarnir eru nýir, já, "sænsk-ættaðir".