Við stoppuðum í steinasafni Petru á Stöðvarfirði og fengum kaffi og með því. Ég man svo sem ekki hvort það var í þetta skipti sem ég fékk nýbakað "fjallagrasabrauð" en það var sérlega gott.
Næsta stopp var gert við Blábjörg í Berufirði. Blábjörg eru hluti af sérkennilegu og víðáttumiklu flikrubergslagi (Skessulagið), svo vitnað sé í Náttúruminjaskrá frá 1996. Myndin hér til hliðar er einmitt tekin þar og sér í Búlandstind í bakgrunni.Hádegishlé gerðum við á Djúpavogi, fengum okkur súpu og brauð á veitingastað sem ég hef ekki farið á fyrr. Það var ágætt í alla staði og líklega heilsusamlegra en bakkelsið sem í boði er í Löngubúð. Hitt er annað mál að ég hef ekki áður gert hádegishlé á Djúpavogi, heldur frekar verið á ferðinni í morgunkaffi, enda ekki fyrr farið í þessa áttina með ferðamenn.
Heldur þótti okkur farið að þykkna upp og eftir því sem sunnar dró minnkaði skyggnið. Við stoppuðum samt í Hvalnesskriðum og síðan á Hvalnesi. Í Lóni voru skýin komin niður í miðjar hlíðar og ekki gott útlit með skyggni á jökulinn úr Almannaskarði. Við ókum engu að síður þangað upp en það er skemmst frá því að segja að þaðan sást ekki neitt. Við renndum því beina leið á Höfn.
Á Höfn gistum við í gistiheimilinu Ásgarði, fyrrum verbúðum við höfnina. Þaðan er fallegt útsýni í góðu skyggni en í þetta sinn tók á móti okkur megn bræðslufnykur. Ég öfunda ekki vertinn við slíkar aðstæður. Ég hef alltaf gist í Ásgarði þessi skipti sem ég hef komið á Höfn og það er bara ágætt. Það eina sem mætti fara betur er að morgunverðarsalurinn er í það minnsta þegar húsið er fullnýtt. Þetta voru Þjóðverjarnir okkar fljótir að átta sig á og lögði því á ráðin að mæta eldsnemma í morgunmat.
Jæja, þar sem hinn hópurinn sem gisti í Ásgarði átti pantaðan kvöldmat í Pakkhúsinu (sem er steinsnar frá Ásgarði) fórum við í kvöldmat á Hótel Höfn. Það þýddi auðvitað að skífan hélt áfram að tifa... Ferðaskrifstofur spá líklega lítið í svona "aukaatriði" - að bílstjórinn geti lent í því að brjóta lög um vinnutíma og vera sektaður - vegna þess að það þurfti að keyra liðið í mat!
Morguninn eftir vaknaði ég á skikkanlegum tíma og fór í morgunmat rétt fyrir kl. 8 en brottför var kl. 9. Það var laust pláss við borðið hjá leiðsögumannnum sem sagði mér að það hefði víst verið þétt setinn bekkurinn kl. 7. Þá mætti drjúgur hluti okkar hóps í morgunmat, skv. útreikningum og heráætlun sem gerð var kvöldið áður. Þjóðverjarnir í hinum hópnum höfðu að sjálfsögðu komist að sömu niðurstöðu og hóparnir mættu því meira og minna á sama tíma í morgunmat!
Það þarf ekki að orðlengja mikið ferðalag þessa dags en skyggni var fremur lélegt. Fyrsta stoppið var við Jökulsárlón en þar fór hópurinn í siglingu. Við gerðum hádegishlé í Skaftafelli en ekki var gengið að Svartafossi. Þá var komið við á Núpsstað og síðan kaffihlé í Vík. Þaðan var svo ekið í náttstað í Drangshlíð, rétt vestan Skóga.
Í Drangshlíð var reyndar allt yfirfullt og við leiðsögumaðurinn þess vegna sendir í gistingu í Edinborg, gamla skátaheimilið í Hafnarfirði sem núna er hótel rétt austan Þorvaldseyrar. Þangað fórum við (ásamt pari úr hópnum sem líka þurfti að gista í Edinborg) eftir kvöldmatinn í Drangshlíð á ögn þreyttum skutbíl sem vertinn lánaði okkur.
Við notuðum tækifærið og ókum eins langt og hægt var í áttina að Seljvallalaug sem er þarna skammt frá og gengum svo síðasta spölinn. Eins og sjá má er önnur langhlið laugarinnar klettaveggur og heita vatnið í lauginni kemur úr heitri uppsprettu rétt hjá. Áin sem einnig sést á myndinni og rennur eftir dalbotninum er svo jökulvatn úr Eyjafjallajökli.
Veðrið var yndislegt þetta kvöld, hægviðri og hitinn ennþá 14°C á ellefta tímanum. Að gönguferðinni lokinni settumst við því út á pallinn sunnan undir húsinu, sötruðum "nestið" frá vertinum í Drangshlíð og nutum útsýnisins til Eyja (og upp í loft - sjá mynd).
Næst fórum við á "neðra" plan við Dyrhólaey. Eins og sjá má var veðrið heldur drungalegt og ekki stakan lunda að sjá.Hádegishlé var gert á Skógum og einhverjir skoðuðu safnið. Að sjálfsögðu var einnig stoppað við Skógafoss og svo Seljalandsfoss á leiðinni á Hvolsvöll.
Á Hvolsvelli gistum við á hótelinu sem þá var nýbúið að stækka. Þar fengum við sérlega góðan mat og vingjarnlegt viðmót. Bíllinn var þveginn vel og vandlega bæði utan og innan, enda búin að vera frekar skrautleg aðstaða til slíks allar götur síðan á Akureyri...
Ekki meira að sinni, fullt af myndum í næsta kafla - úr ferðinni í Landmannalaugar í fínu veðri.

2 comments:
Gleðilegt nýtt ár - og takk fyrir þessa skemmtilegu ferðasögu :) Hlakka til að lesa framhaldið og sjá myndirnar sem ég veit að eru mjög flottar!
Gleðilegt árið Pálmi. Þetta er skemmtileg lesning og fær mann til að hugsa um að ferðast um Ísland í sumar. Mikið væri ég til í það.
Bestu kveðjur í Birkihraunið.
Post a Comment