18.11.06

Síðdegissólsetur

Sólin settist líklega um eða rétt eftir kl. 15:30 í dag en þessi mynd var tekin út um stofugluggann kl. 16:05. Lengst til hægri sést afgangurinn af snjónum sem safnaðist sunnan á allt í norðanáttinni síðast liðnar tvær vikur.

Vandamálið við að taka myndir af snjó við þessi birtuskilyrði er að það er erfitt að finna rétt litajafnvægi. Stafrænar myndir af snjó hafa tilhneigingu til að verða of bláar. (Þær eiga samt ekkert skylt við annars konar bláar myndir...)

Ég verð að viðurkenna að þessi útgáfa myndarinnar er ekki alveg eins og ég hefði viljað hafa hana. Ég er búinn að reyna með þremur mismunandi forritum en það er ómögulegt að sitja endalaust yfir þessu...

Í fjarska sést í frostþokuna við vatnið. Posted by Picasa

5 comments:

Elva said...

Ohhh... mikið væri ég til í að vera í sveitinni núna og fá mér göngutúr í ljósaskiptunum! Rosalega fallegar myndir.

Takk fyrir mig Pálmi!!

Bára Mjöll said...

Æðislegar myndir. Þessi gæti gæti vel komið til greina á jólakort.

Mig langar í nýja myndavél...

Thorarinn said...

Takk fyrir það, verði ykkur að góðu!

Skipti í nýju útgáfuna af Blogger núna áðan og eitthvað virðast íslenskir stafir (a.m.k. sumir) hafa misfarist í flutningum...

Hannes said...

Hmm, hvernig skiptir maður yfir í nýju útgáfuna af blogger, er það gert með því að þrýsta á þar til gerðan hnapp ?

Thorarinn said...

Hannes, já, þannig virkaði það hjá mér. ;-) Ég er reyndar ekki alveg viss um að ég sé 100% ánægður með þessa nýju útgáfu, a.m.k. koma nýjustu "póstarnir" ekki nógu vel út (textinn klesstur uppí myndina). Þarf að skoða það betur.