Ungir Mývetningar fóru í æfingaferð til Akureyrar í gær og kepptu við "jafnaldra" sína í Þór. Þórsarar voru sennilega allir í 5. flokki en Mývetningar voru í 5., 6. og 7. flokki (til að ná í lið).Á efri myndinni sjást Mývetningar taka "njóla" í leikhléi, Baldvin þjálfari (sem gert hefur góða hluti með þessum hópi) sést vinstra megin.

Á neðri myndinni sjást þeir bræður (aðeins hægra megin við miðja mynd) í lok árangursríkrar sóknar Þórsara (sem reyndar gerðist ekki of oft í leikjunum tveimur).
Ferðin var skemmtileg og það er alltaf mikil upplifun að fá að keppa við þessar aðstæður. Sumir Mývetninga hafa reyndar keppt í Boganum á Goðamóti (jafnvel nokkrum sinnum) en þeir yngstu stigu að líkindum sín fyrstu spor á gervigrasi í þessari ferð.
No comments:
Post a Comment