Í dag fóru yngri strákarnir sem æfa fótbolta hjá Mývetningi á æfingu á Húsavík. Þeir spiluðu við strákana í Völsungi (sem sumir voru dálítið reyndari í fótbolta).Helgi sést hér á miðri mynd (númer 8) taka við boltanum en Pálmi er til vinstri (númer 9). Í baksýn sést áhorfendaskarinn ofan úr Mývatnssveit.
Að æfingu lokinni fórum við (fjölskyldan og Mari Liis) og fengum okkur að borða á Sölku.
4 comments:
Hver er Mari Liis?
Hún er au-pair, ein af þremur vinkonum frá Eistlandi sem eru í sveitinni núna. Hinar tvær eru á Skútustöðum (var hér líka í fyrra) og í Álftagerði.
Gaman að þessu og Helgi sýnir þarna góða takta :) Sést ekki í Ingu og Ástu að horfa á? Og er það kannski Mari Liis sem stendur við hliðina á Ástu?
Bára Mjöll, það er rétt til getið.
Post a Comment