Spurt er um myndatökur.Meðfylgjandi myndir sýna sama "mótíf", allar voru myndirnar teknar á mismunandi dögum og ekki var notaður þrífótur. Eins og sjá má eru myndirnar sláandi líkar.
"Galdurinn" felst í því að allar voru myndirnar teknar "efst í hægra horni vestari suðurstofugluggans". Aðdrátturinn er nokkurn veginn sá sami á neðri myndunum tveimur en örlítið minni á efstu myndinni.Ef grannt er skoðað má sjá örlítið af greinunum á vestara lerkinu í garðinum á efstu myndinni.
Efsta myndin var tekin 11.11.2006 kl. 12:21:51. Miðmyndin var tekin 15.11.2006 kl. 11:54:00. Neðsta myndin var tekin 23.11.2006 kl. 14:31:45.Með þokkalegu myndvinnsluforriti er lítið mál að blanda slíkum myndum saman. Ég geri það kannski við tækifæri; Hvítt Hverfell með grænum skógi í forgrunni...?
4 comments:
Mmm... að með þokkalegu myndvinnsluforriti sé lítið mál að blanda myndum saman, teknum frá mism. sjónarhorni.
Ég hef nú aðeins notað photoshop til þessa, ætti maður að fara að skoða eitthvað annað ?
Það er auðvitað allt hægt þegar maður kann á réttu græjurnar... Ég á svo sem eintak af Photoshop Elements 2 en hef lítið notað það.
Hins vegar er ég með Ulead PhotoImpact sem virkar nokkuð vel fyrir þá sem annað hvort nenna ekki eða mega ekki vera að því að leggja það á sig að læra almennilega á Photoshop.
Mmm...
Ég vann mikið með Photoshop á seinni helming liðinnar aldar.
Það var þá. Ég var ungur og mig vantaði pening.
En maður man svona eitthvað að trikkunum ennþá; þetta er þó ekki eins og að læra að hjóla, þetta gleymist nefnilega.
Já, svo koma nýjar útgáfur þar sem hlutirnir eru gerðir með nýjum hætti og nýir möguleikar í boði...
Annars hafði ég hvorki tækifæri né tilefni til að tileinka mér Photoshop. Mér finnst það eiginlega bæði gott og slæmt...
Post a Comment