2.11.06

Af ljósaskiptum, ljósmengun og lykt

Það er dálítið undarleg tilfinning að leggja af stað til Akureyrar um kl. 6:45 að morgni, a.m.k. á þessum árstíma og þá sérstaklega undanfarna tvo morgna. Þannig hefur háttað til að ég hef varla haft tíma til að horfa á veginn vestan við vatn vegna morgunroðans í austri. Til að komast inneftir á skikkanlegum tíma hef ég hins vegar tekið meðvitaða ákvörðun um að skilja myndavélina eftir heima. Það er dálítið sárt en því miður ill nauðsyn.

Í gær lagði ég svo af stað heim um kl. 17:45 (minnir mig) og það var svo undarlegt að birtan var svipuð og þegar ég kom inneftir í gærmorgun og þegar ég kom heim var orðið svipað myrkur og þegar ég lagði upp í gærmorgun. Þetta var eiginlega eins og að "spóla til baka"...

Í morgun sást reyndar vel hvernig ljósmengunin hefur læðst aftan að okkur og er núna orðin áþreifanleg hér í dreifbýlinu. Í austri rofaði af degi en í vestri fór ekki á milli mála bjarminn frá götuljósum og öðrum ljósum (m.a. við höfnina) á Akureyri.

Reykdælir leggja sitt af mörkum með ótrúlega öflugum kösturum sunnan á íþróttahúsinu til að lýsa upp sundlaugina. Þeir eru svo öflugir að þeir lýsa upp og skera í augu ökumanna langt suður í dal. Á Hveravöllum eru ljós til að rækta grænmeti, sem er svo sem gott og blessað en bjarminn frá þeim sést ofan af Fljótsheiði og bjarminn frá ljósunum við Kröfluvirkjun sést svo ofan af Mývatnsheiði.

Fyrir utan að vera algjör óþarfi og óréttlætanleg sóun á orku þá virðist hugsunarleysi tiltölulega fárra (þeirra sem velja ljósabúnað sem lýsir í allar áttir og alltof sterkar perur að auki) valda því að næturhimininn fær sín ekki notið til fulls.

Svo tekið sé mið af auglýsingum um óbeinar reykingar, þá er þetta eiginlega eins og ef íbúar Akureyrar röðuðu sér upp og pissuðu í Pollinn og lyktin bærist alla leið austur í Mývatnssveit.

Talandi um lykt. Á leiðinni heim í kvöld var þvílíkur ilmur af lífrænum áburði á Ströndinni að ég varð að gera hlé á túnfisksamlokuneyslunni þangað til ég var að verða kominn í Víkurskarðið...

3 comments:

Bára Mjöll said...

Austfirðingar hafa slökkt á ljósastaurum og annarri lýsingu hjá sér þessa dagana vegna Daga myrkurs, sem eru nú haldnir hátíðlegir (í a.m.k. 7. sinn). Það er frábær leið til að hvíla sig á ljósmenguninni um stund.

En geturðu ekki tekið myndavélina með og bara tekið myndir á heimleiðinni?!

Elva said...

Já það er ekki gott þegar ljósmengunin er farin að hafa áhrif fyrir utan stærstu bæi Íslands.

Ég lét mig dreyma og bjó til mynd í huganum yfir stemmningunni sem þú lístir þegar þú keyrðir vestan við vatn. :)

Thorarinn said...

Það er flott hjá þeim fyrir austan. Reyndar finnst mér að það mætti leggja í ljósastaurana þannig að hægt væri að slökkva á öðrum hverjum, t.d. eftir kl. 23:00.

Oftast finnst mér nú birtan skemmtilegri á morgnana, sérstaklega þegar maður er staddur vestan vatns. Skuggamynd fjallanna í austri er ótrúlega löng og stundum speglast líka morgunroðinn, ýmist í vatninu eða ísnum.

Það skal tekið fram að það er ekki alltaf kveikt á ljóskösturunum við sundlaugina á Laugum. Þar virðist fólk hins vegar byrja að æfa/synda/liggja í pottunum ótrúlega snemma á morgnana.