25.10.06

Veður heldur batnandi...

Skyggni var heldur betra í dag en í gær og þessi mynd var tekin út um stofugluggann um kl. 16:00 í dag.

Ég var feginn að sjá veðurspána í gærkvöldi. Það er útlit fyrir ögn hlýnandi veður og líklegt að vegir verði auðir um helgina. Ég fer með u.þ.b. 50 manna hóp frá Akureyri til Reykjavíkur kl. 15:00 á föstudag og norður aftur á laugardagskvöld. Ég get ekki sagt að ég hafi hlakkað neitt sérstaklega til fararinnar í byrjun vikunnar á meðan útlit var fyrir éljagang og leiðindi...

Reikna með að ná kvöldmatnum í Staðarskála á föstudag. Það er ekki ljóst hvenær lagt verður af stað norður á laugardag, líklega þó of seint til að ná kvöldmat í Staðarskála aftur.

Hef mestar áhyggjur af því að hópurinn vilji bara keyra viðstöðulaust norður en það má víst ekki lengur vegna reglna um hvíldartíma ökumanna... Posted by Picasa

1 comment:

Bára Mjöll said...

Vá, ég hélt að þetta væri mynd eftir Lollu!