7.5.07

Grímuball í Bárðardal, seinni hluti

Að borðhaldi loknu var skipað í þrjú lið sem kepptu í fáeinum "samkvæmisleikjum", m.a. jurtagreiningu, drykkjagreiningu og "bílaleik".

Um "sveitakeppni" var að ræða, þannig var hvert lið skipað fulltrúum úr hverri sveit en fáum sögum fór af úrslitum.

Eftir "samkvæmiskeppnina" var dansað og áður en haldið var heim á leið var tekið til í salnum og hann þrifinn.

U.þ.b. helmingur gesta tók sér far með rútu frá Fjallasýn RÓ sem undirritaður ók.
Posted by Picasa

1 comment:

Bára Mjöll said...

En skemmtilegt - varstu í grímubúningi?