Þann fyrsta maí var haldin fimleikasýning í Skjólbrekku, lokapunkturinn á fimleikanámskeiði vetrarins. Yngri hópurinn sýndi fyrst nokkrar æfingar á dýnu og að því loknu hópatriði með boltum.
Áhorfendur skemmtu sér vel og var augljóst að krökkunum hefur farið heilmikið fram í vetur.

Á efstu myndinni má sjá Helga James (næst) í miðjum kollhnís, á næstu mynd er Inga Freyja í handahlaupi og að lokum eru tvær myndir frá hópatriðinu.

1 comment:
En skemmtilegt, takk fyrir þessar myndir! Þau taka sig ljómandi vel út systkinin, þú verður að knúsa þau öll frá mér.
Post a Comment