Ásta og Mari-Liis gengu vestur á Belgjarbáru en krakkarnir fóru á reiðhjólum. Inga, Helgi og Siggi (frændi þeirra að sunnan) hjóluðu að Laxá og sneru þar við. Helgi kom í bílinn við Brekku en Inga og Siggi við Belg. Ég ók með þau öll heim í Birkihraun þar sem þau fengu sér heitt kakó.
Síðan fór ég á móti Pálma John en hann hélt áfram með hringinn þar sem hin snéru við hjá gatnamótunum við Arnarvatn. Við mættumst við Kálfaströnd en hann tók ekki í mál annað en að ljúka hringnum. Að því búnu sótti ég reiðhjólin tvö að Belg en hjólið hans Helga komst í skottið í fyrri ferðinni.
Meðfylgjandi mynd tók ég síðan þegar Pálmi John kom heim rétt fyrir kl. 12:30 eftir að hafa hjólað umhverfis Mývatn á þremur og hálfum tíma.

7 comments:
Sko glæsilegt! Ég hugsaði einmitt til ykkar í morgun þegar ég vaknaði og að píslargangan væri sennilega lögð af stað. Kannski getum við verið með næst...!
Páskakveðjur xXx
Vá, þið dugleg! Frábært framtak þessi píslarganga verð ég að segja. Já, kannski við andfætlingarnir verðum bara líka með næst, hver veit?
Kær kveðja til ykkar allra!
Ég þarf að bæta píslargöngu inn á ferilskrána við tækifæri.
Takk fyrir kveðjurnar, sömuleiðis.
Það er ekkert mál að vera með; bara mæta og leggja af stað! :-)
Gaman að lesa af þessari göngu - sem maður heyrir af árlega.
Gleðilega mjög síðbúna páskarest til ykkar f. norðan :) - við vorum á Tálknafirði í góðu yfirlæti, fórum m.a. út á sjó þar sem veiddust þó ekki nema nokkrir þorskar og sandkoli (sem ég veiddi) en það var frábært að fara út að Tálkna og bara að sjá fjörðinn frá því sjónarhorni sem við höfðum.
Bestu kv. Kristbjörg
Pálmi
Þú spurðir fyrir nokkru á okkar bloggi hvort við hefðum fengið okkur Tisp frá Gúgúl... ég var nú bara núna að skoða hvað það er:
http://www.google.com/tisp/install.html
er þetta grín eða ? - hvernig á þetta að geta virkað ;o)
Hannes,
Þessi byltingarkennda nýja aðferð var kynnt þann 01.04.07...
Kristbjörg,
Takk fyrir kveðjuna (sem fór alveg framhjá mér), sömuleiðis. Ég á eftir að skoða fjörðinn "okkar" frá sjó en get ímyndað mér að það sé gaman.
Kveðja,
ÞPJ
Post a Comment