1.3.07

Skýjaskoðun

Var að tala í símann í dag og varð litið út um gluggann. Rauk með það sama út með myndavélina á lofti og tók þessa fyrri mynd nánast beint upp í loftið (og aðeins til suðurs).

Ég veit ekki fyrir víst hvað svona ský heita en þau voru mjög sérstök og falleg. Ég hefði bara þurft að hafa töluvert gleiðari linsu til að ná þessu sómasamlega.
Þar sem ég stóð á stéttinni, tók myndir og horfði út í loftið komu snjótittlingarnir og settust í aspirnar. Við höfum verið dugleg að gefa þeim síðustu daga, reyndar svo dugleg að í dag var allt fræ búið!

Þeir virtust ekki amast við mér og sátu drjúga stund sem fastast, nema þessi eini þarna í vinstra horninu, efst...
Posted by Picasa

9 comments:

Elva said...

Mig minnir að ég hafi lært örlítið um ský á Landa- og veðurfræði hjá honum Jónasi frá Grænavatni í M.A. En ég held svei mér þá að svona ský hafi ekki verið í námsbókunum/glósunum :/ Því miður...

Bestu kveðjur til allra í Birkihrauni 11 (eða á maður að stytta þetta bara í ellefu, svona í samræmi við þrettán og fimmtán?)

Hannes said...

Nú hef ég ekki stundað veðurfræði svo heitið geti. Í lífsins skóla lærði ég þó mun á Háum og Ellum á veðurkortunum - sem virka öfugt hérna megin, þ.e. rangsælis verður réttsælis o.s.frv. en hérna hvað vildi ég segja - já skemmtilegar myndir.

Thorarinn said...

Takk, bæði tvö. Elva, það er alveg óhætt að stytta í 11 (eða B11).

Hér eru útskýringar (stafréttar) frá veðurfræðingi:
"Það er rétt hjá þér að þarna er um háskýjabriði að ræða, klósiga og blikutrefjar. GEtum við ekki útilokað að þetta se´flugvélaslóði. Þeir eiga það nefnilega til við "bestu" skilyrði að breiða úr sér á líkan hátt og þarna sést."

Bára Mjöll said...

Já, mér duttu einmitt flugvélaslóðir í hug, en það hefði þá verið meiri breiðfylkingin! Ótrúlega flott. Ætla að reyna að ná myndum af "blóðmánanum" sem á að sjást í kvöld þegar jörðin verður beint á milli sólar og tungls. Það verður örugglega líka flott... Bestu kveðjur.

Anonymous said...

hæ hæ aldeilis flottar myndir hjá þér frændi ;)

Bestu kveðjur í bæinn - Kristbjörg og Co ;)

Hannes said...

Heyrðu karl, nú er komin þessi fína mynd af hverfelli á www.skattur.is

... fannst einhvernveginn að ég yrði að segja þér frá því ;o)

Anonymous said...

Hæ hæ.
Er bara að kíkja inn á þessa síðu í fyrsta sinn. Fallegar myndir sem þú tekur!
Bestu kveðjur til ykkar allra í Birkihrauninu.
Inga.

Bára Mjöll said...

Hæ, engar nýjar myndir?

Thorarinn said...

Takk fyrir heimsóknir og kveðjur. Nú er loksins komin ný mynd!