16.2.07

Löng helgi í UK, seinni hluti

Á mánudaginn ókum við fyrst fáeinar mílur frá hótelinu til Stratford-upon-Avon. Við skoðuðum fyrst "Anne Hathaway's Cottage" en hún var eiginkona Williams Shakespeares.

Reyndar er búið að byggja og bæta við síðan Shakespeare gekk þarna um garða með grasið í skónum en engu að síður var mjög gaman að koma þarna.

Konan sem fór með okkur um húsið (ásamt öðrum sem var smalað saman í lítinn hóp) var mjög skemmtileg.
Í þessu húsi við Henley Street í Stratford-upon-Avon fæddist William Shakespeare. Þarna ólst hann upp og bjó að auki fyrstu árin eftir að hann kvæntist Önnu Hathaway.

Þótt þarna hafi líka verið gaman að koma þá er heldur meira "plast" í þessu húsi (gervikerti og -arineldur o.s.frv.). Leiðsögumennirnir voru samt ágætir þótt ég hafi aðeins fundið til með þeim að fara með sömu tugguna aftur og aftur og aftur og aftur...

Í Stratford-upon-Avon rigndi töluvert á okkur en það kom ekki í veg fyrir stuttan verslunarleiðangur. Að lokum borðuðum við síðbúinn hádegisverð á litlum veitingastað áður en við ókum til Cambridge.
Í Cambridge heimsóttum við BMJ og fjölskyldu og fengum þessa líka fínu kjúklingasúpu. Undirritaður getur þannig státað sig af tveimur heimsóknum til þeirra sem mun vera "Íslandsmet".

Á mánudagskvöld ókum við til Heathrow og gistum á hóteli rétt við flugvöllinn. Þannig þurftum við bara að keyra eins og eftir endilangri flugbraut 27R til að skila bílnum. Með þessu móti sluppum við alveg við að lenda í umferðaröngþveitinu sem er kallað M25 (heimsins stærsta hringtorg) á mesta annatíma!

Á myndinni sést með hvaða flugfélagi við ferðuðumst að þessu sinni en myndin var tekin í 38 þúsund feta hæð einhvers staðar yfir Atlantshafi, þriðjudaginn 13. febrúar 2007 kl. 15:05.
Posted by Picasa

2 comments:

Anonymous said...

Gaman að sjá færslu frá þér. Ég var farin að örvænta... hélt þú værir kominn í bloggpásu.

Gaman að sjá að þið hafið skellt ykkur til Englands. Já og til hamingju með Íslandsmetið ;)

Bára Mjöll said...

Æðislegar myndir, ekki síst flugvélamyndirnar! Takk annars aftur fyrir komuna, verið ævinlega velkomin.