16.2.07

Löng helgi í UK, fyrri hluti

Flugum til Englands síðdegis fimmtudaginn 8. febrúar 2007. Meðfylgjandi mynd var tekin með símamyndavél einhvers staðar norður af Skotlandi.

Fyrir þá sem kynnu að hafa áhyggjur af meintri símanotkun í háloftunum, þá er síminn með svokallað "Flight Mode" - þar sem slökkt er á öllum rafbylgjusendingum. Reyndar er hægt að kveikja á WiFi (í "Flight Mode") en sú þjónusta virðist ekki í sjónmáli hjá flugfélögum í bili.
Það er óhætt að segja að "vetrarríki" hafi sett allt úr skorðum hjá Bretum á fimmtudag og föstudag. Við komumst engu að síður áfallalaust á hótelið skammt sunnan Birmingham á fimmtudagskvöld.

Myndin var tekin á föstudagsmorgun, skömmu eftir að við heyrðum í sjónvarpsfréttum að allir skólar í Birmingham yrðu lokaðir annan daginn í röð!
Á mánudagsmorgun var hitinn nálægt 10°C og fátt sem minnti á snjóinn annað en pollarnir á túnunum og leifarnar af snjókarli sem einhver hafði búið til fyrir helgina.

Hér er bílaleigubíllinn fyrir utan hótelið. Hann var alveg glænýr, aðeins 6 mílur (10 km) á mælinum þegar við lögðum af stað frá Heathrow!
Posted by Picasa

1 comment:

Anonymous said...

Awesome !