Mari-Liis og Max komu með og stóðu sig vel í að smakka á góðgætinu.
Meðfylgjandi myndir voru teknar með símamyndavél og eru þess vegna ekki alveg "eins og venjulega"...
Hér sjást þeir Arngrímur, Jónas Pétur og Sigurður á Gautlöndum (á bakvið kaffikönnuna) í hlutverkum "kaffikvenna" í Strax. Þarna voru rædd hin ýmsu mál er varða sveitina, m.a. fólksfjölgunarskort. Var jafnvel talið að verkþekking væri á undanhaldi.
Takið sérstaklega eftir fléttunum hans Jónasar Péturs!

3 comments:
Oo, ég sakna þess að komast ekki á þorrablót. Höfum aðeins verið að spá í að fara á blótið í London, en veit ekki hvað verður. Greinilega verið mjög gaman hjá ykkur!
Gott mál; reyni að mæta næst.
Já ég ætla sko að reyna að mæta næst. Ekki spurning!
Post a Comment