1.1.07

Gleðilegt ár!

Nú árið er liðið...
og Björgunarsveitin Stefán hélt sína árlegu flugeldasýningu.
Ég er ekki frá því að sýningin hafi verið með betra móti í ár.

Fjölmenni sótti brennuna sem að þessu sinni var höfð rétt vestan við Jarðböðin.

Staðurinn er frábær; næg bílastæði, gott aðgengi og útsýni yfir brennuna og flugeldasýninguna.

Óska öllum þeim sem þetta lesa gleðilegs árs, með þökk fyrir það liðna. Megi nýja árið verða öllum happadrjúgt.
Posted by Picasa

3 comments:

Bára Mjöll said...

Sniðugur staður fyrir brennuna. Ég varð ekki vör við neinar slíkar hér í Bretaveldi. En þó nokkrum flugeldum var skotið upp í London og sýningin við Augað var bara ansi nett. Gleðilegt ár!

Elva said...

Já, sniðugur staður þarna við Jarðböðin!

Gleðileg nýtt ár til ykkar allra í Birkihrauni 11. Endilega skilaðu kveðju líka í fimmtán með góðri kveðju fyrir jólakortið :)

Hannes said...

Gleðilegt nýár Pálmi !